Frétt

Veturnætur eru fyrir alla á öllum aldri. Frá setningu hátíðarinnar á fimmtudag.
Veturnætur eru fyrir alla á öllum aldri. Frá setningu hátíðarinnar á fimmtudag.

bb.is | 27.10.2007 | 10:37Stórafmæli BG fagnað í kvöld

Lista- og menningarhátíðin Veturnætur stendur nú sem hæst í Ísafjarðarbæ. Dagurinn í dag er viðburðamesti dagurinn í fjögurra daga dagskrá hátíðarinnar. Stendur þar einna hæst afmælishátíð sem Ísafjarðarbær býður til í tilefni af sjötugsafmæli tónlistarmannsins góðkunna Baldurs Geirmundssonar. Dagskráin hefst í Edinborgarhúsinu kl.20 og stendur til 22 en mikil leynd hvílir yfir dagskrá kvöldsins þar sem hún á að koma afmælisbarninu á óvart. Fjölmargir tónlistarmenn stíga á stokk og heiðra kappann. Kl. 23 verður slegið upp dansleik þar sem vinir Baldurs leika fyrir dansi í Edinborg. Strax í kjölfar afmælisins verður flugeldasýning þar sem engu er til sparað.

Í dag verður einnig ýmislegt í boði og má þar nefna myntsýningu í útibúi Sparisjóðs Vestfirðinga á Ísafirði, vestfirskan húslestur í Safnahúsinu og hlöðutónleika með trúbadorunum Mysterious Mörtu og Svavari Knút í Heimabæ í Arnardal. Fyrir dansþyrsta má geta þess að hljómsveitin Sixties spilar í Krúsinni en hún var þaulsetinn gestur á norðanverðum Vestfjörðum á síðasta áratug. Einnig verður GG-bandið á Langa Manga.

Veturnætur eru upphaflega einkaframtak öflugs áhugahóps sem unnið hefur að menningar- og ferðamálum á Ísafirði. Hópurinn vildi stofna til menningarhátíðar að hausti á Ísafirði. Upp úr þessari grasrót óx hátíðin Veturnætur. Veturnætur voru haldnar í fyrsta sinn haustið 1997 og í annað sinn haustið 1998, þá voru þær haldnar árið 2000 og hafa svo verið fastur punktur í menningarlífi hér vestra frá árinu 2004.

„Veturnætur eru til þess ætlaðar að næra sálina og safna andlegum vetrarforða í skammdeginu um leið og við setjum okkur í stellingar fyrir þá skemmtilegu árstíð sem fer í hönd“, segir á vef hátíðarinnar.

Dagskrána má finna í heild sinni á veturnaetur.is.

thelma@bb.is

bb.is | 19.06.13 | 16:48 Á góða möguleika en umsækjendur allir hæfir

Mynd með frétt Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur á Ísafirði og fyrrverandi alþingismaður er meðal umsækjenda um stöðu forseta hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Spurð frétta um ráðningu í stöðuna segir hún: „Það eru komin drög að hæfnisdómi en umsækjendum er gefinn kostur á að ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 14:46Segir almenningi greinilega nóg boðið

Mynd með fréttTæplega 20.000 manns, og hefur farið ört fjölgandi, hafa skrifað undir yfirlýsinguna „Við undirrituð hvetjum Alþingi til að samþykkja ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum 74 frá 26. júní 2012 þar sem skilgreind eru þau gjöld sem útgerðinni ber að ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 13:04Til hamingju með daginn, konur!

Mynd með fréttÍ dag eru 98 ár síðan konur yfir fertugu öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Í tilefni dagsins er boðið upp á fjölbreytta dagskrá víða um landið. Að sögn Hrafnhildar Hrannar Óðinsdóttur, málpípu Femínistafélags Vestfjarða, ætlar félagið í tilefni dagsins ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 10:54Jónsmessufagnaður á Galtarvita

Mynd með fréttÍ kjölfar vinnustofudvalar Ragnars Kjartanssonar myndlistarmanns á Galtarvita verður haldinn Jónsmessufögnuður á miðnætti aðfaranótt 24. júní. Bátsferðir verða í boði frá Suðureyri 23. júní kl. 11 og 17 og hægt verður að tjalda á staðnum eða gista í svefnpokaplássi. Allt frá ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 09:15Súðavík sækir í sig veðrið

Mynd með frétt„Síðasta vika var söguleg fyrir okkur, en þá komu rútur frá skemmtiferðaskipunum í fyrsta skipti til Súðavíkur. Það er í fyrsta sinn sem við tökum á móti ferðamönnum í þessum fjölda. Melrakkasetrið verkur mikla athygli, við eigum nóg af náttúruperlum, það ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 07:45Teflt við páfann í Ísafjarðarkirkju

Mynd með fréttAð sögn sr. Magnúsar Erlingssonar sóknarprests kemur töluvert af ferðamönnum í Ísafjarðarkirkju til að nota salernisaðstöðuna sem þar er. Fólki sé auðvitað alltaf velkomið til að nýta aðstöðuna þar. Bæjaryfirvöld þurfi hins vegar að hugsa málið til enda þegar kemur að ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 15:58Mugison með tónleika og leitin mikla að píanói

Mynd með fréttTónlistarhátíðin Við Djúpið hefst á morgun, miðvikudag, á því að Örn Elías Guðmundsson eða Mugison eins og hann er betur þekktur fleytir hátíðinni af stað með hádegistónleikum kl. 12.10 í Grunnskóla Ísafjarðar. Opnunarhátíðin fer svo fram kl. 20 í Hömrum, menningarhúsi ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 14:48Minnisvarði um Sigurð frá Vigur

Mynd með fréttAfhjúpaður var í eynni Vigur á Ísafjarðardjúpi á föstudag minnisvarði um Sigurð Bjarnason frá Vigur, en hann lést í janúar á síðasta ári, 96 ára að aldri. Sigurður lét eftir sig eiginkonu, Ólöfu Pálsdóttur myndhöggvara, og tvö börn, Hildi Helgu og ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 13:03Mikið um dýrðir á þjóðhátíðardaginn

Mynd með fréttMikið var um dýrðir á Ísafirði í gær, þjóðhátíðardag Íslendinga, og margir mættu prúðbúnir í bæinn eins og sést á meðfylgjandi myndum. Hátíðarhöldin hófust með skrúðgöngu frá Silfurtorgi þar sem lögreglan og skátarnir fóru í fararbroddi að Eyrartúni þar sem skemmtidagskráin ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 10:54Helvítis basl að verða rithöfundur

Mynd með fréttEiríkur Örn Norðdahl er Ísfirðingum að góðu kunnur enda fæddur og uppalinn í bænum. Hann hefur getið sér gott orð sem einn af framsæknustu rithöfundum þjóðarinnar og jafnframt er hann handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár fyrir skáldsöguna Illsku. Hún fór sigurför ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi