Frétt

Frá fuglaskoðunarferðinni. Mynd: bolungarvik.is
Frá fuglaskoðunarferðinni. Mynd: bolungarvik.is

bb.is | 24.05.2007 | 07:13Sást til Karls og Kamillu í Bolungarvík

Fuglaskoðun Náttúrustofu Vestfjarða og Heilsubæjarins Bolungarvík gekk mjög vel. Hist var á Geirastöðum og bílarnir skildir eftir þar. Um 20 manns voru í ferðinni og var gengið meðfram Syðridalsvatni. Meðal annars sást til helsingja, jaðraka, lóuþræl og margar aðrar tegundir. Jaðrakaparið heitir, eftir bestu heimildum, Karl og Kamilla. Vonast er til að fleiri slíkar ferðir verði farnar á næstunni. Böðvar Þórisson líffræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða sá um leiðsögn.

smari@bb.is



Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli