Grein án commenta

Sælkeri vikunnar – Ólafur Helgi Ólafsson í Hnífsdal | 23.06.2012 | 09:24Fiskiréttur sælkerans

Sælkeri vikunnar býður upp á dýrindis fiskirétt sem ætti að gleðja bragðlaukana í öllum sönnum sjávarréttaunnendum. Í eftirrétt býður hann upp á einfalda en ljúffenga ostaköku.

Fiskiréttur sælkerans

400 gr skötuselur eða ýsa
250 gr rækja
250 gr sveppir, ferskir
1 tsk salt
1 tsk pipar
1 msk dill
250 gr rjómaostur
1dl mysa
50 gr smjör

Setjið smjör, skötusel, rækju og sveppi í pott og steikið í 5-7 mín. Bætið rjómaostinum út í ásamt mysu , salti, pipar og dilli. Hitið þetta í u.þ.b. 7 mín eða þar til það þykknar.
Berið fram með volgu brauði, soðnum kartölum og grænmetissalati. Þennan rétt má einnig nota sem fyllingu í tartalettur og látinn þá þykkna meira.


Ostakaka

Botn:
1 pk. Hafrakex (Bónus eða Frón)
1/3 ds. Smjörvi

Fylling:

1 askja rjómaostur (400 gr)
½ líter rjómi, þeyttur
4 dl. flórsykur

Ofan á:
1 krukka kirsuberjasósa (den Gamle danske)

Smjörvinn bræddur og kexið mulið og hrært saman við. Sett í botninn á skál/formi.
Hræra vel saman rjómaost og flórsykur og loks þeytta rjómanum hrært varlega saman við. Hellt yfir kexbotninn.
Yfir þetta hellirðu svo kirsuberjasósunni eða sulta af vild. Einnig gott að skella bláberjum yfir.

Birgir Þór Halldórsson frá Ísafirði ætlar að taka áskorun frá mér.


Til baka - Prenta grein - Senda grein - Senda á Facebook

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi