Gunnar Þór Jóhannsson og Katrín Anna Lund. Mynd: Strandir.is.
Gunnar Þór Jóhannsson og Katrín Anna Lund. Mynd: Strandir.is.

bb.is | 04.06.2012 | 07:37Fólk tengist Ströndum á ólíkan hátt

Gunnar Þór Jóhannesson lektor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands og Katrín Anna Lund dósent í ferðamálafræði við sama skóla, hafa ásamt Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur lektor í ferðamálafræði við Hólaskóla, unnið undanfarin ár að rannsókn um mótun Stranda sem áfangastaðar ferðamanna. Verkefnið er hluti af alþjóðlegri rannsókn um þróun og áhrif ferðaþjónustu á norðlægum jarðsvæðum. Gunnar, Katrín og Guðrún skrifuðu á dögunum grein sem birtist á vef Strandamanna, þar sem gert er grein fyrir könnun sem gerð var meðal úrtaks þjóðarinnar um ímynd svæðisins.

Í könnuninni, sem var hluti af þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunnar Háskóla Íslands, kemur fram að rúmlega helmingur landsmanna hefur farið um Strandir eða Strandasýslu sem ferðamenn. Ýmis svör voru við því hvað kom fyrst upp í huga fólks þegar það hugsaði um Strandir eða Strandasýslu. Á milli 16 og 17% sögðu að „ekkert sérstakt“ kæmi upp í hugann, en aðrir þættir voru áberandi eins og „afskekkt byggð,“ náttúrufegurð og fjöll, eyðibýli, fegurð og friður, galdrar og galdrasafnið og vondir vegir.

Gunnar, Katrín og Guðrún telja að könnunin undirstriki það að upplifun fólks af staðnum sé mjög persónubundin, og í ljósi þess að fólk tengist áfangastað á fjölbreyttan hátt, megi velta því fyrir sér hvort það sé nokkuð vænlegt til árangurs að einblína aðeins á hið einfalda og vel afmarkaða. „Sjarmi svæðis getur einnig legið í því að það sé ekki að fullu skilgreint og pakkað í neytendaumbúðir,“ segir í greininni.

Grein þeirra má lesa í heild sinni á vef Strandabyggðar.

gudmundur@bb.is