Sléttuhreppingar blótuðu þorra
18.02 2012 – Um 130 manns sóttu þorrablót Áttahagafélags Sléttuhrepps sem haldið var í félagsheimilinu í Hnífsdal á laugardag. Að sögn Bergmanns Ólafssonar gekk blótið mjög vel fyrir sig, en Bergmann átti sæti í skemmtinefnd að þessu sinni. Skemmtinefndin setti upp leikþátt í leikstjórn Soffíu Vagnsdóttur, en þemað var Hornstrandarferðir. „Það var látið mjög vel af leikþættinum, alla vegna miðað við hvað salurinn hló. Þá var haldið uppboð þar sem eftirstöðvar af pitsu sem ég fékk senda á þorrablót fyrir nokkrum árum var boðið upp. Ég var í skemmtinefnd þá og höfðu sumir áhyggjur af því að ég fengi lítið að borða og því var ákveðið að panta handa mér pitsu. Uppboðið endaði í fimm milljónir, en það kom ekki fram hvort upphæðin væru í íslenskri krónu eða erlendri gjaldmynt,“ segir Bergmann. Hljómsveitin Benni Sig og Express spilaði fyrir dansi að loknu borðhaldi og dönsuðu gestir langt fram eftir nóttu. Ljósmyndari blaðsins tók meðfylgjandi myndir á blótinu.