Líf og fjör hefur verið á veitingahúsinu Vagninum að Flateyri að undanförnu. Á laugardagskvöldið, 7. ágúst mætti Guðmundur Jónsson gítarleikari á svæðið og flutti lög af nýútkominni sólóplötu sinni JAPL en kvöldið áður hafði hann troðið upp á Hópinu á Tálknafirði. Guðmundur er eins og kunnugt er gítarleikari og aðallagasmiður hljómsveitarinnar Sálin hans Jóns míns. Á fimmtudagskvöld lá andi Megasar í loftinu á Vagninum en þá tróðu þeir Elfar Logi Hannesson og Sigurður Hafberg upp og fluttu helstu perlur meistarans við undirleik Guðmundar Hjaltasonar og Ingvars Alfreðssonar. Ekki nóg með að viðstaddir hafi notið frábærra laga Megasar heldur létu þeir einnig gott af sér leiða því tónleikarnir voru um leið góðgerðarsamkoma þar sem safnað var fyrir gítar í Grunnskóla Önundarfjarðar. Páll Önundarson var á Vagninum og tók meðfylgjandi myndir.