Eldra efni

bb.is | 06.05.13 | 15:01 Hyggst opna veitingastað á besta stað

Mynd með frétt Bernharð Hjaltalín hefur fengið lóð að Sindragötu 13A á Ísafirði undir fyrirhugaðan veitingastað, en þar er hægt að byggja allt að 300 fermetra hús. „Ég fékk lóðina og ætla að opna veitingastað á besta stað í bænum,“ segir Bernharð, en hann vinnur nú að því að klára fjármögnun verkefnisins. Ekki er ...
Meira

bb.is | 06.05.13 | 14:47Fiðringur í verkefnastýru Vest-Fiðrings

Mynd með frétt„Þetta er ekki eitthvað sem gerist á einum degi en þetta er svakalega spennandi verkefni til langtíma litið. Vestfirðingar eru skapandi í eðli sínu og eiga alla möguleika á því að gera skapandi atvinnugreinar að gjöfulli viðbót við mannlíf og menningu um alla Vestfirði,“ segir Elísabet Gunnarsdóttir, arkitekt og hugmyndafræðingur á ...
Meira


bb.is | 10.06.11 | 13:10 Sýning Georgs Guðna opnuð í dag

Mynd með frétt Georg Guðni opnar sýningu í Listasafni Ísafjarðar kl. 16 í dag. Allir eru boðnir velkomnir til að fagna því með listamanninum. Georg Guðni Hauksson er talinn einn af fremstu túlkendum landslags á Íslandi. Málverk hans af fjöllum einkennast af marglaga littónum þar sem einfaldleiki og andrúm viðfangsefnisins hefur forgang. Georg Guðni ...
Meira

bb.is | 29.12.09 | 11:06 Kosningu á Vestfirðingi ársins að ljúka

Mynd með frétt Hátt í fjögur hundruð tilnefningar hafa borist í kosninguna um Vestfirðing ársins. Það fer því hver að verða síðastur að tilefna þann sem mest á skilið nafnbótina að þeirra mati en kosningu lýkur á gamlársdag. Kosningarétt hafa allir lesendur bb.is, hvar sem þeir eru í veröldinni. Kjörgengir eru þeir sem með ...
Meira


bb.is | 04.08.09 | 13:57 Stofnun félags léttadrengja?

Mynd með frétt Það flýgur nú fjöllunum hærra á vef Þingeyringa að unnið sé að stofnun Félags léttadrengja í Dýrafirði um þessar mundir. Er sagt að Hemmi Gunn, léttadrengur á Húsatúni í Haukadal, sé þar framarlega í flokki og verði jafnvel hugsanlegt formannsefni ef af verður, sem er þó allsendis óvíst. Vitað er að ...
Meira

bb.is | 20.02.09 | 16:23 „Flott að fá aukaflugför“

Mynd með frétt „Það er flott að fá aukaflugför fyrir tónleikaferðirnar,“ segir Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, aðspurður hvaða þýðingu það hefur að hafa fengið Loftbrúarverðlaunin á Íslensku tónlistarverðlaununum. Hann segir ekki margar tónleikarferðir á dagskránni í ár en einhverjar eru þó áætlaðar í sumar. „Ég spila á nokkrum tónlistarhátíðum í sumar ...
Meira


bb.is | 16.01.09 | 13:28 Fyrsta barn ársins á Ísafirði

Mynd með frétt Fyrsta barn ársins er komið í heiminn á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði en það er drengur sem fæddist 14. janúar. Stoltir foreldrar piltsins eru Hálfdán Bjarki Hálfdánsson og Dóra Hlín Gísladóttir á Ísafirði og er hann fyrsta barn þeirra. Drengurinn vó 4125 grömm við fæðingu og var 53 cm á lengd. Móður ...
Meira

bb.is | 05.01.09 | 16:48 „Kitlar hégómagirndina“

Mynd með frétt „Nei ég reikna nú ekki með því. Ætli ég láti ekki Viðar Hákon, barnabarn mitt, mæta fyrir mig,“ segir Villi Valli, tónlistarmaður á Ísafirði, aðspurður hvort hann hugsi sér að mæta til Íslensku tónlistarverðlaunanna en plata hans Í tímans rás er tilnefnd í flokki djass-tónlistar. Villi Valli hefur ekki miklar áhyggjur ...
Meira


bb.is | 22.12.08 | 13:27 Hafnarstarfsmenn syngja jólin inn

Mynd með frétt Snemma í morgun fengu lögreglumenn á Ísafirði kærkomna heimsókn. Þá mættu á lögreglustöðina þeir Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar og Hjalti Þórarinsson, starfsmaður hafnarinnar, og sungu nokkur jólalög fyrir lögreglumennina. „Hafi einhverjir viðstaddir ekki verið komnir í jólaskap hrukku menn í þann gírinn við þessa heimsókn,“ segir Hlynur Snorrason, lögreglufulltrúi. Guðmundur ...
Meira

bb.is | 16.12.08 | 16:22 Sólborgarbörn héldu jólagleði

Mynd með frétt Nemendur leikskólans Sólborgar á Ísafirði og kennarar þeirra héldu árlega jólagleði í dag. Byrjað var á að hittast í svokallaðri Sokkastund þar sem lesin var jólasaga fyrir börnin. Því næst var stiginn dans. Jólasveinar hafa líklega rennt á hljóðið en þeir standast sjaldnast slíkar skemmtanir og mættu þeir í sólskinsskapi og ...
Meira


bb.is | 05.12.08 | 15:27 Tugir tilnefninga um Vestfirðing ársins

Mynd með frétt Nokkrir tugir tilnefninga hafa borist í kosningu um Vestfirðing ársins sem hófst á þriðjudag. Hægt er að skila inn tilnefningum til 31. desember en til þess að koma þeim á framfæri er notað sérstakt form hér efst á vefnum þar sem birtist „Vestfirðingur ársins 2008?“. Sá sem útnefninguna hlýtur fær henni ...
Meira

bb.is | 05.12.08 | 13:55 Dóri Hermanns með eina bestu rödd Íslands

Mynd með frétt DV setti saman sérvalinn dómstól til að velja bestu rödd Íslands. Voru margir um hitunina en raddir Gerðar G. Bjarklind útvarpskonu og fréttamannanna Gissur Sigurðssonar og Brodda Broddasonar þóttu bera af. Athygli vekur að Halldór Hermannsson, fyrrverandi skipstjóri og nú formaður Félags eldri borgara í Ísafjarðarbæ, var á listanum yfir bestu ...
Meira


bb.is | 03.12.08 | 13:22 Ísfirsk ljósmynd á sýningu í Barcelona

Mynd með frétt Ísfirskur áhugaljósmyndari verður með eina mynd á myndlistarsýningu sem er haldin í Galleria Espaib í Barcelona á Spáni frá 4. desember fram í janúar á næsta ári. Baldur Páll Hólmgeirsson heitir ljósmyndarinn en alls eru 100 myndir á sýningunni og 100 eintök af hverri mynd til sölu en sýningin nefnist „100x100 ...
Meira

bb.is | 19.11.08 | 16:57 Fjölmenni fagnaði Herdísi

Mynd með frétt Fjölmenni fagnaði með Herdísi Albertsdóttur á Ísafirði í dag er hún hélt upp á 100 ára afmæli sitt. Herdísi, eða Dísu Alberts eins og hún er þekkt í daglegu tali, voru færðar margar góðar gjafir. Halldór Halldórsson bæjarstjóri færði henni blómvönd fyrir hönd sveitarfélagsins og sagði Dísa það vera fyrstu gjöfina ...
Meira


bb.is | 19.11.08 | 15:41 Nýr verslunarstjóri hjá Samkaup á Ísafirði

Mynd með frétt Hákon Hermannsson hefur tekið við sem verslunarstjóri Samkaupa á Ísafirði af Kristjáni Þór Kristjánssyni. Dómhildur Árnadóttir, starfsmannastjóri Samkaupa, segir mikla ánægju ríkja með ráðningu Hákons en þó nokkrir sóttu um stöðuna. „Það sýndu margir einstaklingar mikinn áhuga á starfinu og margir þeirra vildu ólmir komast vestur. Hákon þótti hæfastur af þeim ...
Meira

bb.is | 18.11.08 | 16:39 Komu langa leið til að sjá sýningu um ömmu sína

Mynd með frétt Sonarsynir skáldkonunnar Hallfríðar Eyjólfsdóttur frá Laugarbóli í Ísafjarðardjúpi heimsóttu sýninguna um ömmu sína á Ísafirði í dag en þeir höfðu komið langa leið til að berja hana augum. „Við vissum ekki af sýningunni fyrr en ég fékk póst frá Kristjáni (Jóhannssyni á Ísafirði innskot blaðamanns) en ég bý í New York ...
Meira


bb.is | 17.11.08 | 14:56 Hrekkjavaka á Flateyri

Mynd með frétt Elstu bekkir grunnskólanna í Bolungarvík og í Ísafjarðarbæ komu saman á hrekkjavökuballi á Flateyri á föstudag. „Þetta var mjög gaman en þarna komu saman nemendur í 8.-10. bekk í boði Flateyringa. Við fórum í rútum yfir til Flateyrar og allir voru í búningum. Ég veit ekki betur en að krakkarnir hafi ...
Meira

bb.is | 14.11.08 | 14:34 Óvæntur gestur á Sólborg

Mynd með frétt Óvæntur og óvenjulegur gestur poppaði upp á leikskólanum Sólborg á Ísafirði í morgun. Barst hann til leikskólans í ávaxtakassa. „Heimsóknin vakti mismikla lukku! Við teljum þetta vera engissprettu, en ætlum að senda hann til Náttúrugripasafnsins í Bolungarvík til frekari greiningar“, segir Guðrún Birgisdóttir, aðstoðarleikstjóri skólans.
Meira


bb.is | 13.11.08 | 11:25 Dísa Alberts nær aldargömul

Mynd með frétt Herdís Albertsdóttir á Ísafirði verður 100 ára miðvikudaginn 19. nóvember nk. Herdís, eða Dísa Alberts, er fædd að Sundstræti 33 á Ísafirði og hefur alla tíð búið í því húsi eða þar til í sumar er hún fór á öldrunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði. Þar ætlar hún að taka á móti gestum ...
Meira

bb.is | 12.11.08 | 16:14 Góðir tónleikar Mysterious Mörtu

Mynd með frétt Tónlistarkonan Mysterious Marta hélt tónleika í Vagninum á Flateyri á föstudag. Yfirskrift tónleikanna var „Manst þú eftir mér“ og voru þeir einstaklega vel heppnaðir að sögn Mörtu. „Ég var rosalega ánægð með tónleikana og var mjög góður „stemmari“ á þeim,“ segir Marta. Mugison hitaði upp fyrir Mörtu en hann kom fram ...
Meira


bb.is | 10.11.08 | 14:51 Skrallið heppnaðist vel

Mynd með frétt „Skrallið heppnaðist alveg einstaklega vel. Krúsin kom skemmtilega á óvart og ágætis tilbreyting að halda menntaskólaball þar enda langt síðan við héldum dansleik í henni,“ segir Brynjólfur Óli Árnason, formaður Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði. Brynjólfur segir dansleikinn hafa farið vel fram. „Já, samnemendur mínir voru mjög ljúfir á þessu balli. Þeir ...
Meira

bb.is | 05.11.08 | 14:25 Manst þú eftir mér?

Mynd með frétt Mysterious Marta heldur tónleika í Vagninum á Flateyri kl. 22 föstudag. Tónleikarnir nefnast „Manst þú eftir mér?“ og hafa þeir haft langan aðdraganda að sögn Mörtu. „Ég flutti aftur suður í haust til að fara í skóla. Mig hefur lengi dreymt að halda þessa tónleika, bara rétt til að minna á ...
Meira



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli