Bloggið

Einar Kristinn Guðfinnsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherraMúlnum smeygt á órólegu deildina

 Ríkisstjórnin er engu lík. Þegar hún liggur löskuð, máttlítil og vanmegna, dettur henni ekki í hug að lækna meinsemdina. Hún fer í fegrunaraðgerð. Hún er eins og illa haldinn sjúklingur sem sér það helst til ráða að leita til lýtalæknis til að hressa upp á útlitið í stað þess að grafast ...
Meira

Grímur Atlason, fyrrv. bæjarstjóri í BolungarvíkVerkefni stjórnlagaþings

…er fyrst og fremst að breyta þessu: ´´ í þetta: Landið eitt kjördæmi er réttlætismál síðustu áratuga. Af með þúfuna og niður með völd örfárra á kostnað fjölmargra!
Meira

Matthildur Helgadóttir, framkvæmdastjóri á ÍsafirðiSetti þriðja kynslóðin þjóðina á hausinn?

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvenær spillingin sem varð okkur að falli hófst og hef látið mér detta í hug að það sé þriðja kynslóðin sem varð of gráðug.  Afar okkar -en sjaldnast ömmur- bjuggu til óskrifaðar skiptareglur milli valdhafa eða flokka þar sem verkum var skipt á milli ...
Meira

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir, veitingamaður í BolungarvíkSiggi Daða i Kjallaranum

Trubadorinn Sigurður Daðason trubador fra Þingeyri sem i daglegu tali er nefndur Siggi Daða ætlar að mæta i Kjallarann um miðnættið a laugardagskvöldið. Hann ku vera storgoður trubador og tekur Vertinn heilshugar undir það þvi hljomur af lögum hans hefur omað i eyrum tittnefndrar i formi frumsaminna laga. Tveir kolamolar verða a ...
Meira

Gunnar Þórðarson, viðskiptafræðingur á ÍsafirðiGengið niður Lónsöræfi

Normal 0 false false false EN-US X-NONE X-NONE ...
Meira

Baldur Smári Einarsson, bæjarfulltrúi í BolungarvíkNeyðarlögin

Ég mætti í spjall á Lífæðinni í seinna fallinu síðastliðið laugardagskvöld. Þetta var lokakvöld Lífæðarinnar og því ærið tilefni til að eiga góða stund með útvarpsstjóranum Tóta Vagns og öðrum aðstandendum útvarpsstöðvarinnar. Dr. Lýður mætti með kapteininn í hljóðverið og gerði heiðarlega tilraun til að kenna mér að drekka þann gyllta ...
Meira

Þorleifur Ágústsson, líffræðingur á Ísafirði"Er í fríi frá vinnu í dag..vinsamlegast leitið annað...er að sinna strandveiðum"

Mér hefur fundist vera töluverð rómantík - svona andspyrnurómantík í kringum þessar strandveiðar. Barátta gegn stóru útgerðafélögunum. Ég sá fyrir mér að nú gætu þeir trillukarlar sem hafa viðurværi sitt af veiðum bætt við sig og fengið örlítinn aukaskammt. Já og jafnvel þeir sem ekki hafa haft ráð á að taka sér ...
Meira

Albertína Elíasdóttir, verkefnastjóri á ÍsafirðiKúnstin að búa á besta stað í heimi

Er nú eiginlega hætt að blogga ... en langaði að benda ykkur á smá greinarkorn sem ég var að skrifa og hefur verið birt á http://www.bb.is undir Aðsendar greinar - (http://bb.is/Pages/82?NewsID=145140)
Meira

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, garðyrkjustjóri ÍsafjarðarbæjarSmá hugleiðing í sól og blíðu á Ísafirði.

Þegar þetta er ritað er orðið ljóst að ráðherraskipti hafa orðið í ríkisstjórn.  Jóhanna hefur setir sveitt við að ráða og reka.  Hún virðist hafa gert þetta alein því enginn þykist vita neitt eða hafa með málin að gera.  Meira að segja aðspurður sagði Össur í gær og lyfti höndum eins ...
Meira

Ingólfur H. Þorleifsson, varabæjarfulltrúi í ÍsafjarðarbæAð halda fast í stólinn sinn

Það er alkunn staðreynd að ríkisstjórnin er ekki á vetur setjandi vegna ósamstöðu flokkanna tveggja sem hana skipa. Það líður varla sá dagur að ekki gangi pillur á milli samherja. En óttinn við að missa sæti sitt við stjórnarborðið er öllu yfirsterkara. Fólk er tilbúið að láta hrauna yfir sig frá ...
Meira

Ylfa Mist Helgadóttir, húsmóðir í BolungarvíkBara best.

 I've nothing much to offerThere's nothing much to takeI'm an absolute beginnerAnd I'm absolutely saneAs long as we're togetherThe rest can go to hellI absolutely love youBut we're absolute beginnersWith eyes completely openBut nervous all the sameIf our love songCould fly over mountainsCould laugh at the oceanJust like the filmsThere's no ...
Meira

Hallur Magnússon, framkvæmdastjóri í ReykjavíkAðdragandi, innleiðing og áhrif breytinga á útlánum Íbúðalánasjóðs 2004

Rannsóknarnefnd Alþingis kannaði ekki nægilega undirbúning og skipulag ákvarðana um breytingar á útlánareglum Íbúðalánasjóðs sem áttu að taka gildi á árunum 2004 til 2007.Allur undirbúningur ákvörðunartöku vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á opinbera húsnæðislánakerfinu miðuðu markvisst að því að valda eins litlum efnahagslegum áhrifum og nokkur kostur var og allt kapp var lagt á ...
Meira

Helga Vala Helgadóttir, blaðamaður í Reykjavíkglóruleysi við Vesturbæjarskóla.

Fyrr má nú vera fjárskorturinn. Þetta er alls ekki í lagi: Þetta eru hinar nýju byggingar sem ætlað er að nota sem íverustað barna í heilsdagsskólanum við Vesturbæjarskóla í vetur! Kofarnir tveir dekka nú helming leikvallar 330 barna sem stunda nám við Vesturbæjarskóla. ég geri mér grein fyrir að við erum blönk… en ...
Meira

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur í ReykjavíkJarlinn í hámarki

Fellibylurinn Eerl eða Jarl er um það bil að ná hámarksstyrk sínum úti á Atlantshafi.  Könnunarflugvél flaug yfir augað í nótt og sleppti kanna.  Hann sendi til baka þær upplýsingar að í miðju væri loftþrýstingur 928 hPa.  Einnig var flogið inn í bylinn og þess getið að við NA-vegg hans væri ...
Meira

Jón Bjarnason, þingmaður VG í NV-kjördæmiSex af hverjum tíu andvígir ESB aðild

Ný könnun  Gallup sýnir afgerandi andstöðu íslensku þjóðarinnar við áform um inngöngu landsins í Evrópusambandið. Liðlega 6 af hverjum 10 sem afstöðu tóku  í könnuninni eru andvíg aðild. Þessi niðurstaða kemur mér ekki á óvart og er í fullu samræmi við þau viðhorf sem ég mæti á ferðum mínum um landið. ...
Meira

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ÍsafjarðarbæjarMeira um persónukjör

Í kringum og eftir sveitarstjórnarkosningarnar er umræða um persónukjör. Eins og fyrr tala margir kjósendur um að þeir vilji geta valið fólk en síður flokka. Mér finnst það skiljanlegt og hef lengi verið hlynntur því að breyta aðferðum okkar við val á fulltrúum. Ríkisstjórnin lagði fram frumvarp um persónukjör á síðasta ári. ...
Meira


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli