Aðsendar greinar

Helga Margrét Marzellíusardóttir | 01.09.10 | 16:38 Öll börn eru gæfubörn

Mynd með frétt Ég geri eiginlega allt hratt eða í flýti. Ég labba hratt, ég tala hratt, ég skrifa hratt, ég tek ákvarðanir í miklu flýti og er á móti því að lífið mitt sé allt fyrirfram ákveðið. Ég átti kærasta á leikskólanum og gekk ég að eiga hann við viðeigandi athöfn í dúkkukróki ...
Meira

Íris Sveinsdóttir / Hulda Karlsdóttir / Sigrún Gerða Gísladóttir | 30.08.10 | 11:18Misheppnuð sameining heilbrigðisstofnana á norðanverðum Vestfjörðum

Mynd með fréttMeð breytingu á heilbrigðislögum 1973 var heilsugæslustöð sett á fót í Bolungarvík. Þar með var lagður grunnur að almennri læknisþjónustu og heilsugæslu á staðnum. Fyrir þann tíma var löng saga um setu læknis og ljósmóður í Bolungarvík sem báru ábyrgð á grunnþjónustu og unnu samhliða að velferð bæjarbúa.
Meira


Helga Margrét Guðmundsdóttir | 20.08.10 | 10:39 Að vera skólaforeldri

Mynd með frétt Um leið og barn þitt hefur grunnskólagöngu verður þú sjálfkrafa meðlimur í foreldrafélagi skólans en þau eru nú lögbundin. Heimili og skóli - landssamtök foreldra hvetja foreldra til að vera virkir í skólastarfinu og taka þátt í starfsemi foreldrafélaganna strax frá skólabyrjun. Rannsóknir sýna að það að foreldrar hittist og þekkist ...
Meira

Salome Elín Ingólfsdóttir | 18.08.10 | 09:57 Á ekki að fara í berjamó?

Mynd með frétt Að fara í berjamó hefur verið hefð á mínu heimili frá því ég man eftir mér og berin borðuð allt árið ef sprettan hefur verið góð. Það er tilvalin fjölskyldustund að skella sér uppí hlíð og tína nokkur ber útá skyrið. Þeir sem vilja eiga berin í meira magni geta skipulagt ...
Meira


Ólafur Bjarni Halldórsson | 12.08.10 | 10:24 Það getur gert brim á strandveiðum

Mynd með frétt Það er alveg útilokað að sitja þegjandi undir útvarpspistli Guðmundar Kristjánssonar sem ég hélt satt að segja að væri vinur okkar Vestfirðinga. Hann ræðir um ónýtan fisk sem fyrirtæki hans Brim keypti af strandveiðibátum í sumar. Nú vill svo til að undirritaður var að gutla við nokkra strandveiðiróðra frá elstu ...
Meira

Lýður Árnason | 09.08.10 | 13:14 Sjálftökuhreiður – 2. þáttur

Mynd með frétt Í fyrri viku gagnrýndi ég ofurlaun lækningaforstjóra Ísafjarðarspítala og fagna hve fljótt og lipurlega var skorið niður. Betur má þó ef duga skal og hvika ég hvergi frá þeirri skoðun að óhagkvæmasta einingin í rekstri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sé umrætt stöðugildi. Beini því hér með aftur til ráðherra. Útskýring lækningaforstjórans á misræminu ...
Meira


Lýður Árnason | 05.08.10 | 14:06 Sjálftökuhreiður

Mynd með frétt Stundum kemur samhengi hluta í ljós, stundum ekki. Í sameiningarferli heilsugæslu Bolungarvíkur við Ísafjörð hafa spjót legið á Bolvíkingum, að einingin væri ekki nógu hagkvæm. Læknirinn gæti t.d. ekki búist við óbreyttu starfshlutfalli miðað við afköst. Engu að síður er til samantekt um samskipti lækna svæðisins sem sýnir lækni Bolvíkinga ...
Meira

Níels A. Ársælsson | 22.07.10 | 10:47 Úthafsrækjan - samráðsforstjórar LÍÚ - svona haga þeir sér

Mynd með frétt Um miðjan febrúar 2006 bárust þau tíðindi að grálúðukvóti innan íslenskrar lögsögu væri nær ófáanlegur til leigu nema kanski gegn ofurgjaldi. Þessi staða kom flestum í opna skjöldu, ekki síst í ljósi þess að einungis hafði náðst að veiða 4314 tonn af 16.146 tonna úthlutuðu aflamarki það fiskveiðiárið. Ekki náðist að ...
Meira


Níels A. Ársælsson | 13.07.10 | 16:17 Þú verður áreiðanlega brenndur

Mynd með frétt Þeir sem höfðu vænst þess í langan tíma á svæði A í strandveiðikerfinu að sjávarútvegsráðherra Jón Bjarnason mundi snúa ofan af ranglætinu og mannréttindabrotunum sem viðgengist hafa í kvótakerfinu hafa nú orðið fyrir gríðarlegu áfalli. Eins og kunnugt er þá var strandveiðum komið á vegna kosningaloforða VG um frjálsar handfæraveiðar ...
Meira

Finnbogi Sveinbjörnsson | 05.07.10 | 13:54 Stórfelldar uppsagnir hjá fyrirtækjum í vega- og mannvirkjagerð!

Mynd með frétt Nú um þessi mánaðarmót hafa fyrirtæki sem sérhæfa sig í vega- og mannvirkjagerð enn þurft að segja upp starfsfólki. Gera má ráð fyrir að þessar uppsagnir varði rúmlega 200 manns á landinu öllu. Þessir einstaklingar bætast nú við þá tæplega þá 17 þúsund einstaklinga sem eru í atvinnuleit á Íslandi í ...
Meira


Birna Lárusdóttir | 24.06.10 | 11:37 Skemmtileg sýning heim að sækja

Mynd með frétt Hún lætur ekki mikið yfir sér sýningin sem var opnuð í Safnahúsinu á Ísafirði á laugardaginn var. Samt segir hún svo ótrúlega mikla sögu. Kvenfélagið Hlíf á Ísafirði fagnar hundrað ára afmæli á þessu ári og meðal viðburða á afmælisárinu er sögusýning tileinkuð vinnu og verkum þeirra fjölmörgu kvenna, sem hafa ...
Meira

Einar Kristinn Guðfinnsson | 21.06.10 | 14:03 Eru fréttirnar kannski betri?

Mynd með frétt Fréttirnar af stærri þorskstofni eru jákvæðar og uppörvandi. Árið 2007 var talið að viðmiðunarstofninn, sem lagður er til grundvallar kvótaúthlutun, yrði í ársbyrjun 2008 einungis um 570 þúsund tonn. Hafrannsóknastofnunin taldi og að framundan yrðu ekki skárri ár. Þorskkvótinn miðað við óbreytta nýtingarstefnu hefði því um ókominn tíma verið um 150 ...
Meira


Sigurður Pétursson | 18.06.10 | 09:37 17. júní - Stærsta verkefnið

Mynd með frétt Nú brosir vorsólin blíð og góð / Og býður mér góðan daginn, / og ritar gullstöfum ljúflingsljóð / á lygnan og bjartan sæinn. / Við hafgúu söng og hörpu óm / ég hlusta´ á þann snilldarbraginn; / að sunnan fer vorið með söng og hljóm / og suðræna, hlýja blæinn.
Meira

Ómar Már Jónsson. | 15.06.10 | 15:31 Eyrardalsbærinn tekinn aftur í notkun

Mynd með frétt Laugardagurinn 12. júní var ánægjulegur og fyrir því voru tvær góðar ástæður. Fyrri ástæðan er sú að tekið var í notkun hús í Eyrardal eftir gagngerar endurbætur og seinni ástæðan er sú að í húsinu var opnuð sýning Melrakkasetur Íslands ehf. Saga jarðarinnar Eyrardals og saga hússins sem ...
Meira


Peter Weiss | 14.06.10 | 08:36 Háskólahátíð

Mynd með frétt Þann 17. júní 2010 munu fyrstu meistaranemarnir í haf- og strandsvæðastjórnun hjá Háskólasetri Vestfjarða útskrifast frá Háskólanum á Akureyri og býður Háskólasetrið af því tilefni til háskólahátíðar á Hrafnseyri. Það er Háskólasetrinu mikill heiður að bæði menntamálaráðherra og rektor HA taka þátt í hátíðinni. Hátíðlega athöfnin kl. 12-13 er opin almenningi ...
Meira

Jón Bjarnason | 07.06.10 | 15:29 Á sjómannadegi

Mynd með frétt Um mitt síðasta ár skipaði ég starfshóp um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Markmiðið var og er að ná fram alvöru breytingum á núverandi sjávarútvegsstefnu þannig að greininni verði sköpuð góð rekstrarskilyrði til framtíðar, fiskveiðar verði stundaðar bæði samfélagslega og vistfræðilega með sjálfbærum hætti og sem víðtækust sátt náist um fiskveiðistjórnunina meðal þjóðarinnar. Ég ...
Meira


Elías Jónatansson | 02.06.10 | 11:48 Þökkum góðan stuðning

Mynd með frétt Sjálfstæðismenn og óháðir í Bolungarvík vilja þakka fyrir góðan stuðning í kosningunum á laugardaginn. Með 61% stuðningi þeirra sem tóku afstöðu þá liggur fyrir að meirihluti bæjarstjórnar er með breiðfylkingu á bakvið sig. En nú eru kosningar afstaðnar og við tekur vinna við daglegan rekstur bæjarfélagsins ásamt vinnu við að framfylgja ...
Meira

Stígur Berg Sophusson | 29.05.10 | 10:00 Látum ekki skjóta okkur í kaf!

Mynd með frétt Nú þegar það er aðeins einn dagur til stefnu velti ég því fyrir mér hvað það er sem að fólk hér í bæ er í raun að leita að. Hvaða kostum bæjarfulltrúi þarf að vera gæddur til að fullnægja þörfum íbúa Ísafjarðarbæjar? Ég sé það fyrir mér að bæjarfulltrúi þurfi að ...
Meira


Halldóra Hreinsdóttir | 28.05.10 | 18:00 Hjúkrunarheimili – þrætuepli stjórnmálanna?

Mynd með frétt Í framhaldi umræðna hér á BB vefnum um hjúkrunarheimili finnst mér ég knúin til að leggja orð í belg. Ég er hjúkrunarfræðingur og hef starfað lengi með öldruðum og tel mig kannski vita nokkuð um þennan málaflokk. Á síðasta kjörtímabili hefur mikil vinna verið lögð í undirbúning að stofnun ...
Meira

Sigurjón J. Sigurðsson | 28.05.10 | 14:00 dv.is, bb.is og skutull.is

Mynd með frétt Sem Ísfirðingi finnst mér þetta vera dapurleg kosningabarátta og málefnafátæktin dapurleg. Allir flokkarnir í Ísafjarðarbæ virðast vera með nánast það sama á stefnuskrám sínum. Helsta kosningamálið hjá Í-listanum virðist þó, eins og áður hefur komið fram, vera barátta gegn Bæjarins besta og bb.is, þó svo að það sé ekki á hinni ...
Meira


Lýður Árnason | 28.05.10 | 10:26 Öfugmælaruglumbull

Mynd með frétt Davíð Björn Kjartansson skrifar málefnalega grein og vel fram setta um stöðu sína innan kvótakerfisins. Á skýran hátt lýsir hann aðkomu sinni að útgerð og hvernig breytingartillögur valdhafa snúa við þeim sem þegar eru fyrir í kerfinu og keypt hafa sínar veiðiheimildir. Lýsir Davíð því óréttlæti að horfa upp á mann ...
Meira

Davíð Björn Kjartansson | 27.05.10 | 19:37 Öfugmæladæmisaga

Mynd með frétt Ég hef stundað sjó alla mína ævi. Framan af var ég með föður mínum á netum og á rækju í Djúpinu. Seinna var ég háseti á Páli Pálsyni undir stjórn Adda Kitta Gauj og líkaði vel. Mig langaði alltaf til þess að byggja eitthvað upp sjálfur og fór að róa á ...
Meira



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli