bb.is | 16.02.2007 | 09:01Skrifstofuhótelið opnar heimasíðu
Heimasíða Skrifstofuhótelsins Ísafirði var formlega opnuð í gær. Tölvufyrirtækið Snerpa ehf., á Ísafirði sá um hönnun og uppsetningu síðunnar, en Ólafur Pétursson, nemi í auglýsingahönnun í Barcelona, sá um að hanna merki fyrirtækisins. Heimasíðan er sett upp í forritinu Snerpill, sem er vefforrit sem auðveldar notanda allar uppfærslur og breytingar á heimasíðu sinni. Skrifstofuhótelið, sem er fyrsta sinnar tegundar á Vestfjörðum, var opnað í desember. Skrifstofuhótelið leigir út skrifstofur, fundarsal og ráðstefnusal. Einnig eru ýmis námskeið í boði á vegum þess og eru nánari upplýsingar um þau á heimasíðunni.
thelma@bb.is
skrifstofuhotel.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.