bb.is | 26.01.2007 | 16:30Slökkvilið Ísafjarðarbæjar opnar nýja heimasíðu
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar hefur opnað nýja heimasíðu. Þar kemur m.a. fram að ákvörðunin um að opna nýja heimasíðu hafi verið tekin eftir að gamla síðan varð fyrir „árásum óprúttinna einstaklinga í netheimum“ eins og það er orðað. Var samið við Snerpu um notkun á nýju vefumsjónarkerfi sem nefnist Snerpill. Á nýju síðunni kennir margra grasa og er meðal annars hægt að lesa þar blogg slökkviliðsstjóra og fara inn á undirsíður slökkviliða einstakra byggðarkjarna. Þá kemur fram að þessa dagana sé verið að fara yfir myndasafn slökkviliðsins og skanna myndirnar inn. „Ef einhverjir eiga gamlar myndir úr starfi slökkviliðs og eru fúsir til að lána okkur þær til afritunar þá myndum við þyggja það með þökkum.“
eirikur@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.