bb.is | 23.01.2007 | 11:45Grein um Vestfirði í erlendu tímariti
„Á vestasta hluta Evrópu er Ísafjörður, miðstöð verslunar og fiskiðnaðar á Vestfjörðum, sem eru tengdir meginlandinu með mjóum granda. Bjartmáluð timburhúsin, heimili þeirra þrjú- eða fjögur þúsund íbúa sem þar búa, eru umkringd óspilltum óbyggðum. Byggðasafnið er hápunktur. Í verslunum má finna handgerðar lopapeysur og leirmuni, sem í er brennt malað hraun,“ segir Linda Fasteson sem var farþegi um borð í skemmtiskipinu Amsterdam sem kom til Ísafjarðar í ágúst sl. Hún hefur ritað grein í nýjasta hefti Explore, sem er mánaðarrit fyrir athafnasama eldri borgara, þar sem hún segir frá heimsókn sinni á Vestfirði.
Linda mælir með ferð í eyjuna Vigur, sem hún lýsir svona: „Ferðin er með bát af svæðinu út í örsmáu eyjuna Vigur, þar sem Hugrún Magnúsdóttir opnar heimili sitt fyrir gestum sem vilja heyra um einstakt líf fjölskyldu hennar, hvernig þau hafa týnt dún úr aldargömlum steinvegg byggðum af fjölskyldunni, þar sem 3600 æðarfuglar koma aftur til varps vor hvert. Á sumrin koma um 80.000 lundar og hitta aftur maka sína og neðanjarðar hreiðrin, og bæta þar við fæðukeðjuna. Á meðan harðir vetrar ganga yfir, er dúnninn hreinsaður og hugsað er um kýrnar. Við drukkum kaffi sem var lagað úr fersku íslensku vatni og gæddum okkur á heimagerðu bakkelsinu inni í indælu 19. aldar húsi fjölskyldunnar, sem minnir á málverk eftir Carl Larsson.“ Frá fréttinni var sagt á síðunni vesturferdir.is.
annska@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.