Frétt

Guðmundur Helgason segir sprettuna vera með eindæmum góða í Dýrafirðinum í ár.
Guðmundur Helgason segir sprettuna vera með eindæmum góða í Dýrafirðinum í ár.

bb.is | 17.08.2012 | 16:15Veraldarvinir tína dýrfirsk aðalbláber

Forsvarsmenn á Hótel Núpi í Dýrafirði og Edinborg, café, bistro, bar á Ísafirði hafa fest kaup á 105 kílóum af dýrfirskum aðalbláberjum og segja að sprettan hafi sjaldan verið meiri í Dýrafirði en nú. Von er á sjálfboðaliðahóp frá Veraldarvinum um aðra helgi sem fenginn verður til að tína ber. „Við eigum von á fimm ungmennum sem verða hjá okkur í tvær vikur en verða þó ekki eingöngu við berjatínslu. Við höfum fengið Veraldarvini til okkar undanfarin ár og það hefur alltaf gengið mjög vel. Þau verða, eins og undanfarin sumur, að vinna einnig fegrun umhverfisins, segir Guðmundur Helgason, vert á Hótel Núpi og Edinborg. Hann bætir við að frá og með deginum í dag verði hægt að fá bláber með rjóma í Edinborg.

thelma@bb.is



bb.is | 25.05.13 | 10:44 Straumleysi mest á Vestfjörðum

Mynd með frétt „Það kemur Vestfirðingum vissulega ekkert á óvart þó ég tilkynni það hér með að straumleysi er mest á Vestfjörðum, á öllu starfssvæði Landsnets,“ sagði Þórður Guðmundsson forstjóri Landsnets, raforkudreifingar ríkisins, á opnum ársfundi Orkubús Vestfjarða á dögunum. Í erindi sínu fjallaði ...
Meira

bb.is | 25.05.13 | 09:17„Menningarmiðstöðin verður að stofna hollvinasamtök“

Mynd með frétt„Einhvern veginn þarf þessi regnhlíf sem Menningarmiðstöðin er, innan starfsemi Edinborgarhússins sem heildar, að tryggja rekstur sinn og blómlegt menningarlíf allan ársins hring,“ segir Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir rekstrarstýra Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar á Ísafirði. „Þeir hagsmunir sem á hverjum tíma eru uppi, verða ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 16:50Ferðamenn afbóka vegna ástands vegarins um Kjálkafjörð

Mynd með frétt„Ég veit ekki hvaða lýsingarorð á að nota, þetta er gjörsamlega út úr korti hvernig Vegagerðin bregst við þessari vá á þessum vegi. Eins og að loka klukkan 16 á föstudegi yfir hvítasunnuhelgina um óákveðinn tíma með þeirri skýringu að ekki ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 14:48Ástandið ógn við atvinnuöryggi

Mynd með fréttSveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lítur þá stöðu sem komin er upp á þjóðvegi 60 í Kjálkafirði alvarlegum augum. Mesti annatími ársins sé að ganga í garð og fyrirtæki eigi mikið undir því komið að samgöngur séu eins og best verður á kosið. Núverandi ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 13:02Mikið bíósumar á Ísafirði

Mynd með frétt„Það er greinilegt að Ísfirðingar er mjög ánægðir með að bíó sé partur af menningarlífinu sem bærinn bíður uppá,“ segir Gróa Böðvarsdóttir hjá Ísafjarðarbíó en nú um helgina hefst sumarvertíðin af fullum krafti. „Þetta eru auðvitað þessar klassísku sumarmyndir sem við ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 10:53Stofnvísitalan segir ekki allt

Mynd með fréttMisræmi er á milli stofnvísitölu rækju og ráðlagðra veiða Hafrannsóknastofnunar undanfarinna ára. Afli á sóknareiningu CPUE, sem er afli í kílóum á hverja klukkustund togtímans, hefur haldist á svipuðu róli á árunum 1974-2011. Á fyrri árum var lagt til að veitt ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 09:12Algjörlega galið að stöðva rækjuveiðar

Mynd með fréttÚthafsrækjuveiðar verða stöðvaðar 1. júlí en til stendur að endurskoða skipulag rækjuveiða við landið sem hafa verið frjálsar undanfarin ár. Líklegt þykir að gefnar verði út aflaheimildir á skip en ekki eru allir sammála um útfærsluna. Fyrirkomulag undanfarinna ár hefur haft ...
Meira

bb.is | 24.05.13 | 07:40Samstarfssamningur undirritaður um sjávartengda nýsköpun

Mynd með fréttHáskólasetur Vestfjarða og Háskólinn á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um meistaranám í haf- og strandveiðastjórnun. Auk áframhaldandi samstarfs um meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun felur samningurinn einnig í sér samstarf stofnanna tveggja um nýtt meistaranám, sjávartengda nýsköpun. Sjávartengd nýsköpun er nýstárleg ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 16:49Milljarða framkvæmdir í Ísafjarðarbæ

Mynd með fréttÓvenju mikið er um stórar og umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar í Ísafjarðarbæ á næstu misserum. Um er að ræða verkefni sem sum hver hlaupa á hundruðum milljóna króna. Landsnet og Orkubú Vestfjarða hyggjast reisa 320m² hús að Skeiði 7 sem á ...
Meira

bb.is | 23.05.13 | 14:47Kæruferli vegna útboðs?

Mynd með fréttSigurður G. Guðjónsson hæstaréttalögmaður kannar þessa dagana möguleika á kæru vegna útboðs á almenningssamgöngum í Ísafjarðarbæ. Eigandi fjögurra fyrirtækja, Friðfinnur Sigurðsson á Þingeyri, sem lagði inn fjögur tilboð í verkið, hefur leitað til Sigurðar vegna þessa. Öll tilboð fyrirtækja Friðfinns voru ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi