Frétt

Mikið álag hefur verið á starfsfólki ÁTVR í dag og í gær.
Mikið álag hefur verið á starfsfólki ÁTVR í dag og í gær.

bb.is | 03.08.2012 | 14:55Gestum þykir vínið gott

Vín skal til vinar drekka segir máltækið. Íslendingar hittist nú á mannamótum um landið allt og gera sér dagamun, oftar en ekki með glas í hönd, enda er verslunarmannhelgin stærsta ferðahelgi ársins. Útihátíðir líkt og Mýrarboltinn á Ísafirði laða marga ölþyrsta einstaklinga að og því hefur álagið verið mikið á starfsmönnum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á Ísafirði í dag, en vínið hefur runnið út líkt og heitar lummur. „Það er búið að vera brjálað að gera bæði í dag og í gær, og við búumst við öðru eins á morgun,“ segir Esther Ósk Arnórsdóttir starfsmaður ÁTVR á Ísafirði.

Mikill mannfjöldi er kominn til Ísafjarðar en metþátttaka verður í Mýrarboltanum í ár. Esther segir að allar tegundir áfengis seljist, og engin ein tegund sé vinsælli en önnur, þó bjórinn sé vissulega alltaf í sérflokki. „Fólk er að kaupa léttvín og sterkt áfengi, og bjórinn er auðvitað alltaf vinsæll.“ Esther segir að mikið magn áfengis hafi verið pantað til Ísafjarðar fyrir helgina, og sé það að borga sig. „Við pöntuðum tvöfalt eða þrefalt magn fyrir helgina, og nú vonumst við bara að þetta endist fram á morgun,“ segir Esther í léttum dúr.

Tómas Guðmundsson Reykjavíkurskáld sagði eitt sinn að áfengið mætti eiga það, að hafa aldrei gert neinum mein að fyrra bragði. Rétt þykir þó að minnast þess að neysla þess hefur oft reynst örlagavaldur á mannamótum sem þessum. Þátttakendur í Mýrarboltanum munu eflaust tækifærið til að væta kverkarnar á milli leikja, og þá getur verið gott að hafa í huga að vínið sé góður þjónn en vondur húsbóndi.

gudmundur@bb.is

bb.is | 20.06.13 | 09:16 Við Djúpið: Glæsileg dagskrá í dag

Mynd með frétt Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið á Ísafirði er afar vegleg í dag sem endranær. Fyrst má nefna að Óskar Guðjónsson, einn helsti saxófónleikari landsins, spilar á hádegistónleikum í Grunnskóla Ísafjarðar. Óskar er fæddur 1974 og stundaði nám í trommu-, píanó- og saxófónleik ...
Meira

bb.is | 20.06.13 | 07:44Atvinnuleysi minnkaði heldur milli mánaða

Mynd með fréttAtvinnuleysi mældist 2,2% af áætluðum mannfjölda fjórðungsins á Vestfjörðum í maí, sem er samdráttur um 0,5 prósentustig frá því í apríl. Konur eru í meirihluta atvinnulausra eða 2,7% en 1,7% karla eru skráðir án atvinnu. Í lok maímánaðar voru 78 manns, ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 16:48Á góða möguleika en umsækjendur allir hæfir

Mynd með fréttÓlína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur á Ísafirði og fyrrverandi alþingismaður er meðal umsækjenda um stöðu forseta hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Spurð frétta um ráðningu í stöðuna segir hún: „Það eru komin drög að hæfnisdómi en umsækjendum er gefinn kostur á að ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 14:46Segir almenningi greinilega nóg boðið

Mynd með fréttTæplega 20.000 manns, og hefur farið ört fjölgandi, hafa skrifað undir yfirlýsinguna „Við undirrituð hvetjum Alþingi til að samþykkja ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum 74 frá 26. júní 2012 þar sem skilgreind eru þau gjöld sem útgerðinni ber að ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 13:04Til hamingju með daginn, konur!

Mynd með fréttÍ dag eru 98 ár síðan konur yfir fertugu öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla. Í tilefni dagsins er boðið upp á fjölbreytta dagskrá víða um landið. Að sögn Hrafnhildar Hrannar Óðinsdóttur, málpípu Femínistafélags Vestfjarða, ætlar félagið í tilefni dagsins ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 10:54Jónsmessufagnaður á Galtarvita

Mynd með fréttÍ kjölfar vinnustofudvalar Ragnars Kjartanssonar myndlistarmanns á Galtarvita verður haldinn Jónsmessufögnuður á miðnætti aðfaranótt 24. júní. Bátsferðir verða í boði frá Suðureyri 23. júní kl. 11 og 17 og hægt verður að tjalda á staðnum eða gista í svefnpokaplássi. Allt frá ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 09:15Súðavík sækir í sig veðrið

Mynd með frétt„Síðasta vika var söguleg fyrir okkur, en þá komu rútur frá skemmtiferðaskipunum í fyrsta skipti til Súðavíkur. Það er í fyrsta sinn sem við tökum á móti ferðamönnum í þessum fjölda. Melrakkasetrið verkur mikla athygli, við eigum nóg af náttúruperlum, það ...
Meira

bb.is | 19.06.13 | 07:45Teflt við páfann í Ísafjarðarkirkju

Mynd með fréttAð sögn sr. Magnúsar Erlingssonar sóknarprests kemur töluvert af ferðamönnum í Ísafjarðarkirkju til að nota salernisaðstöðuna sem þar er. Fólki sé auðvitað alltaf velkomið til að nýta aðstöðuna þar. Bæjaryfirvöld þurfi hins vegar að hugsa málið til enda þegar kemur að ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 15:58Mugison með tónleika og leitin mikla að píanói

Mynd með fréttTónlistarhátíðin Við Djúpið hefst á morgun, miðvikudag, á því að Örn Elías Guðmundsson eða Mugison eins og hann er betur þekktur fleytir hátíðinni af stað með hádegistónleikum kl. 12.10 í Grunnskóla Ísafjarðar. Opnunarhátíðin fer svo fram kl. 20 í Hömrum, menningarhúsi ...
Meira

bb.is | 18.06.13 | 14:48Minnisvarði um Sigurð frá Vigur

Mynd með fréttAfhjúpaður var í eynni Vigur á Ísafjarðardjúpi á föstudag minnisvarði um Sigurð Bjarnason frá Vigur, en hann lést í janúar á síðasta ári, 96 ára að aldri. Sigurður lét eftir sig eiginkonu, Ólöfu Pálsdóttur myndhöggvara, og tvö börn, Hildi Helgu og ...
Meira


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi