Frétt

Lítið hefur þokast í deilu flugumferðarstjóra og Flugstoða.
Lítið hefur þokast í deilu flugumferðarstjóra og Flugstoða.

bb.is | 11.03.2010 | 15:58Innanlandsflug gæti stöðvast í fyrramálið

Lítið hefur þokast í deilu flugumferðarstjóra og Flugstoða. Samninganefndirnar sitja nú á fundi hjá Ríkissáttasemjara en náist samningar ekki mun innanlandsflug og flug til og frá landinu stöðvast milli klukkan sjö og ellefu í fyrramálið. Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV fara flugumferðastjórar fram á umtalsverðar launahækkanir. Flugumferðastjórar hafa ekki viljað gefa upp hverjar kröfurnar séu en hafa þó sagt þær svipaðar þeim sem flugmenn fengu nýverið eða sex prósent.

Frá þessu er greint á ruv.is.

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli