Frétt

Frá síðustu fermingarsýningu.
Frá síðustu fermingarsýningu.

bb.is | 11.03.2010 | 15:29Fermingarsýningin haldin í sjötta sinn

Árviss fermingarsýning verður haldin á Hótel Ísafirði kl. 14 til 16 á laugardag. Krakkar á fermingaraldri sýna allt það nýjasta er við kemur klæðnaði og hárgreiðslu fyrir ferminguna og einnig verður til sýnis allt það nýjasta er snýr að gjöfum og veitingum fyrir veisluna. Markmiðið er að gefa fermingarbörnum og aðstandendum þeirra hugmyndir fyrir daginn stóra. Mörg fyrirtæki í Ísafjarðarbæ koma að sýningunni; Jón og Gunna, Gullauga, Við Pollinn, Hafnarbúðin, Hárkompaní, Efnalaugin Albert, Eymundsson, Leggur og skel og Blómaturninn.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli