bb.is | 11.03.2010 | 14:29Kjóll bæjarlistamanns prýðir forsíðu bresks tímarits
Forsíða maí heftis breska prjónablaðsins YARN Forward prýðir kjólin Telmu eftir bæjarlistamann Ísafjarðarbæjar 2002, Hörpu Jónsdóttir en hún er með fleiri verkefni í undirbúningi fyrir blaðið. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag og þar segist Harpa vera að vonum ánægð með heiðurinn. Þetta sé þó ekki í fyrsta skipti sem prjónauppskrift eftir hana birtist í blaðinu. „Ég var með belti í blaðinu í fyrra en ritstjóri blaðsins setti sig í samband við mig í gegnum vefinn Ravelry sem er eins konar „Feisbúkk“ prjónaáhugafólks,“ segir Harpa í samtali við Fréttablaðið. Kjólinn kallar Harpa Telmu eftir dóttur sinni og lýsir honum svo að honum svipi til lopavesta sem hafi verið vinsæl með hefðbundnu munstri að ofan. Kjóllinn er með A-sniði með víðu pilsi og blómum á pilsinu sem prjónuð eru með rósaleppaprjóni. „Eins er blúnda neðan á pilsinu sem byrjað er að fitja upp á svo kjóllinn er unninn öðruvísi en aðrir prjónakjólar.“Harpa hefur prjónað síðan hún man eftir sér og segir heiður að fá uppskrift á forsíðu blaðsins og sér fram á áframhaldandi samvinnu bið blaðið. „Þetta er ekki vel borgað en ef ég fæ eitthvað fyrir er ánægð og læri mikið eins og að vera í sambandi við tækniritstjórann. Þetta hefur undið upp á sig og ég er með tösku, barnakjól og fleira í undirbúningi fyrir blöð sem koma út í haust,“ segir Harpa í Fréttablaðinu í dag.
kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.