Frétt

Frá þjóðfundinum.
Frá þjóðfundinum.

bb.is | 08.02.2010 | 16:50Fjölsóttur þjóðfundur

Rúmlega hundrað manns sóttu þjóðfund sem haldinn var í Bolungarvík á laugardag. Markmið fundarins var að setja fram hugmyndir um framtíðaráform Vestfjarða til eflingar atvinnulífs og samfélags á grundvelli sérstöðu og styrkleika svæðinu. „Ísland er að fóta sig eftir hrunið og það þarf því að finna stefnuna sem á að fara. Þetta er liður í þeirri vinnu,“ segir Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga. Unnið var á tólf vinnuborðum og farið yfir þær hugmyndir sem komu fram og hvernig unnt væri að framkvæma þær. Á næstu dögum verðurr farið yfir hugmyndirnar og valdar þær sem þykja eiga mesta möguleika. Þessi vinna verður grundvöllur að áætlun hvers landshluta innan þeirrar sóknaráætlunar sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að gerð verði og tillaga til þingsályktunar hefur verið lögð fram um á Alþingi. Niðurstöður fundanna verða einnig nýttar við gerð áætlana ríkisins svo sem byggðaáætlun, ferðamálaáætlun og fjárlög fyrir árið 2011.

Fulltrúar íbúa á Vestfjörðum voru valdir með tilviljunarkenndu úrtaki úr þjóðskrá en einnig sátu fundinn fulltrúar hagsmunaaðila af svæðinu. Þar var um að ræða fólk úr sveitarstjórnum, atvinnulífi, launþegasamtökum,stofnunum og stjórnmálaflokkum. Um er að ræða samstarfsverkefni stjórnvalda, atvinnuþróunarfélaga og landshlutasamtaka. Að því koma t.d. öll ráðuneytin, nýsköpunarmiðstöð, háskólar og margir fleiri.

Þetta var annar fundurinn af átta en haldnir verða þjóðfundir á hverjum laugardegi til 20. mars. Öll landshlutasamtökin koma síðan saman á fundi á Akureyri í lok mars og bera saman niðurstöður.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli