Frétt

Sorphirðugjald er hæst á Ísafirði að því er fram kemur í könnun sem verðalagseftirlit ASÍ hefur gert á útsvari og álagningu fasteignagjalda í 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins.
Sorphirðugjald er hæst á Ísafirði að því er fram kemur í könnun sem verðalagseftirlit ASÍ hefur gert á útsvari og álagningu fasteignagjalda í 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins.

bb.is | 08.02.2010 | 16:23Hæst sorphirðugjald á Ísafirði

Sorphirðugjald er hæst á Ísafirði að því er fram kemur í könnun sem verðalagseftirlit ASÍ hefur gert á útsvari og álagningu fasteignagjalda í 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Sorphirðugjaldið á Ísafirði er 41.580.- krónur, sem er 10% hækkun frá árinu 2009. Lægsta gjaldið er í Mosfellsbæ, eða 15.000 krónur á tunnu sem er 177% lægra en á Ísafirði. Sorphirðugjald hækkar hjá öllum sveitafélögum nema Fljótsdalshéraði þar sem það lækkar um 3% og hjá Reykjavíkurborg þar sem það stendur í stað. Mesta hækkun sorphirðugjalda milli ára er í Árborg, en þar nemur hækkunin 54%, á Akranesi 46% og á Akureyri um 42%.

Skýrslan í heild

kristjan@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (2 Komment )

  1. Komment skrifaði venni þann 08.02.10 | 17:40

    Ég vil koma á framfæri viðbótarupplýsingum vegna sorpgjaldanna.
    Ísafjarðarbær hefur valið að láta gjaldtöku vegna sorpmála endurspegla að miklu leyti kostnað við málaflokkinn. Gjaldtakan að viðbættum öðrum tekjum Funa hefur staðið undir u.þ.b. 80% rekstrarkostnaðar á síðastliðnum árum. Mismunurinn er greiddur af öðrum tekjum sveitarfélagsins (útsvari).
    Hjá öðrum sveitarfélögum er þetta hlutfall lægra, þ.e.að þau velja að greiða fyrir málaflokkinn að meira og stundum mestu leyti með útsvarinu. Það er val hvers sveitarfélags. Sveitarfélögin hafa heimild til að láta gjaldtökuna standa undir málaflokknum að öllu leyti. Þróunin síðustu ár hefur verið í sömu átt og hjá okkur, að gjöldin hafa verið að hækka til að endurspegla raunkostnað og undirstrikar þessi skýrsla það að einhverju leyti. Einnig þessi frétt: (http://www.visir.is/article/2009148993445)
    Það hve háa upphæð hvert heimili greiðir í sorpmálin endurspeglar því ekki endilega kostnað sveitarfélagsins við málaflokkinn. Heldur að hve miklu leyti íbúar/notendur eru látnir greiða fyrir þjónustuna.

    Vernharður Jósefsson
    Forstöðumaður Funa

  2. Komment skrifaði AGA þann 08.02.10 | 17:25

    Við toppum alla, í sama hverju það er, sorpið okkar er dýrt og gott! Svo ætlumst við til að einhver flytji hingað :)

Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli