bb.is | 09.02.2010 | 07:26Snjóframleiðsluvélin heldur skíðasvæðinu opnu
„Það má eiginlega segja að snjóframleiðsluvélin haldi barnasvæðinu opnu,“ segir Úlfur Guðmundsson forstöðumaður skíðasvæðis Ísafirðinga. Barnasvæðið var opnað um helgina en unnið hefur verið að því að undanförnu að framleiða snjó fyrir svæðið. Úlfur reiknar með að hafa barnabrekkuna opna næstu daga og segir að það eigi ekki að skipta máli þótt það hlýni eða rigni, snjórinn sé það góður. Aðspurður hvort til standi að fjölga snjóframleiðsluvélum segir Úlfur það ekki vera inn í myndinni eins og er. „Svona vélar nota gríðarlegt magn af vatni og rafmagni, til þess að fjölga þeim þyrfti að setja upp allskonar leiðslur og dælur og það þyrfti að fjármagna það, vélin er í sjálfu sér ekki dýr en það er kerfið í kringum hana sem setur strik í reikninginn,“ segir Úlfur. Að undanförnu hafa starfsmenn skíðasvæðisins verið að framleiða snjó en vegna vatnsleysis neðarlega í brekkunni er hann framleiddur efst og honum ýtt niður.„Við erum með þessa vél að láni frá ítölsku fyrirtæki en þeir aðilar ætla að koma til Ísafjarðar 22. febrúar og ætla í samvinnu við okkur að vera með kynningu á þessum vélum fyrir skíðasvæðin á landinu,“ segir Úlfur. Úlfur segir mikla framtíð í framleiðslu á snjó og segir að skíðasvæðin fyrir sunnan séu að íhuga kaupa á snjóframleiðsluvélum. „Á Akureyri er t.d mikið um snjó en þeir keyra vélina alltaf með þegar þeir geta, Þetta er miklu betri snjór og mun þægilegra að troða hann og vinna með. Hefðum við fengið þessa vél í sumar þá hefðum við getað haft barnasvæðið opið frá miðjum október og aldrei þurft að loka því,“ segir Úlfar. Hann segir jafnframt að það þurfi 8 stiga frost í 4-5 daga til þess að framleiða snjó fyrir allt barnasvæðið. „Þegar hitastigið er svona misjafnt tekur það mun lengri tíma. Það verður þó að teljast merkilegt að geta haft barnasvæðið opið núna þegar það er lítið um snjó hér í kring.“
kristjan@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.