bb.is | 08.02.2010 | 14:57„Ekki bein hækkun heldur leiðrétting“
Foreldrar og forráðamenn Dægradvalar í Ísafjarðarbæ fengu fyrir mistök greiðsluseðil fyrir janúarmánuð þar sem innifalin var hækkun sem samþykkt var af bæjarstjórn 5. febrúar. Hópur foreldra mótmælti því að dagvistunargjöldin væru afturvirk þar sem ekki var minnst á það samþykkt bæjarstjórnar. „Það voru mistök í innheimtu að senda út seðla fyrir janúar með hækkuninni en hún er miðuð við 1. febrúar og verður það leiðrétt á næsta seðli,“ segir Margrét Halldórsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar. Hún vill þó taka fram að ekki hafi verið um beina hækkun að ræða heldur leiðréttingu á gjaldskrá.„Hámarksgjald hefur tekið mið af því að einungis sé greitt fyrir 57,5 á mánuði þó svo barnið sé í vistun mun fleiri tíma í mánuð. Þegar gjaldskrá hækkaði fyrsta janúar 2009 var hinsvegar hámarksgjaldið ekki hækkað og foreldrar því einungis að greiða fyrir rúmlega 53 tíma í mánuði. Þetta gerðist svo aftur núna um áramótin að hámarksgjald fylgdi ekki hækkun tímagjalds (en allar gjaldskrár hækkuðu um 10%) og því er einungis um leiðréttingu að ræða.“
Sjá einnig:
Hámarksupphæð fyrir Dægradvöl hækkar
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.