Frétt

Sigurður Magnússon.
Sigurður Magnússon.

bb.is | 03.02.2010 | 11:35Ber Ísafjarðarbæ og Álftanes saman

Sigurður Magnússon, bæjarfulltrúi Á-lista á Álftanesi, setur út á að Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar beiti sér ekki fyrir leiðréttingu á greiðslum frá Jöfnunarsjóði. „Halldór Halldórsson, formaður Sambands Íslenskra sveitarfélaga, sagði í viðtali fyrir helgi að ríkisvaldið þyrfti að koma að vanda Álftaness, en ekki endilega með fjárframlögum og var ekki hægt að skilja orð hans öðruvísi en að sveitarfélagið þyrfti að sameinast öðru sveitarfélagi. Ekki sá Halldór ástæðu til þess að taka undir kröfu Álftnesinga um leiðréttingu á greiðslum frá Jöfnunarsjóði. Þó sýnir skýrsla að Álftanes þarf 150 - 200 milljón króna leiðréttingu árlega í viðbótarframlög til að standa fjárhagslega jafnfætis nágrannasveitarfélögum,“ segir Sigurður í pistli sínum sem birtur hefur verið á visir.is.

Hann bendir á að 31% skatttekna Ísafjarðarbæjar koma frá Jöfnunarsjóði til Ísafjarðar. „Ég velti því fyrir mér hvort Halldór hafi ruglast í ríminu, um hlutverk sitt, en hann gegnir líka stöðu bæjarstjóra á Ísafirði. Bæjarsjóðurinn sem hann veitir forstöðu fær rúmlega 31 % skatttekna sinna frá Jöfnunarsjóðnum, á meðan Álftanes fær 15 %.“

Sigurður segir að stuðningur sjóðsins sé sambærilegur í báðum sveitarfélögunum að teknu tilliti til íbúafjölda. „Skoðum betur fjárhagsaðstæður í bæjunum tveimur áður en kemur til greiðslna frá Jöfnunarsjóði. Skatttekjur eru mjög sambærilegar, eða 345 þúsund á Ísafirði, deilt á hvern íbúa en 354 á Álftanesi. Kostnaður í bæjarsjóðum er líka sambærilegur, þannig er launakostnaður 308 þúsund á íbúa og annar rekstrarkostnaður 205 þúsund á íbúa á Ísafirði meðan þessi sami kostnaður er 298 þúsund og 192 þúsund á Álftanesi. Rekstur og skatttekjur eru því sambærileg,- reyndar þrátt fyrir þá staðreynd að leikskólabörn eru u.þ.b. 60% fleiri hlutfallslega á Álftanesi og grunnskólabörn um 20% fleiri, sem undirstrikar góðan rekstur stofnana á Álftanesi í samanburði við Ísafjörð. Þetta hærra hlutfall barna og unglinga á Álftanesi ætti líka að hækka jöfnunargreiðslur frá sjóðnum til Álftaness, en gerir það ekki.“

Pistill Sigurðar í heild.

thelma@bb.is

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (1 Komment )

  1. Komment skrifaði reynirr þann 03.02.10 | 12:42

    Sigurður það er gott að það eru alltaf fleiri og fleiri að sjá í geggnum Halldór.Halldór heldur að hann sé snillingur og allir eigi að gera eins og hann vill . Ég segi nei við svona stjórnun.

Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli