Meirihluti T lista í sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti í gær að falla frá áfrýjun dómsmáls til Landsréttar. Voru greidd atkvæði um málið og greiddu 3 sveitarstjórnarmenn atkvæði með því að afturkalla áfrýjunina en 2 fulltrúar A lista, minnihlutans greiddu atkvæði gegn. Það var Þorgeir Pálsson, fyrrverandi sveitarstjóri og núverandi oddviti sveitarstjórnar sem höfðaði málið gegn sveitarfélaginu. Héraðsdómur Vestfjarða hafnaði kröfu Þorgeirs um biðlaun og hafnaði einnig að sveitarfélagið greiddi honum málskostnað, en dæmdi honum 500.000 kr miskabætur vegna ónærgætni við uppsögnina.
Fyrrverandi sveitarstjórn ákvað að áfrýja dómnum og vildi ekki una miskabótunum þar sem að hennar mati uppsögnin var lögmæt.
Landsréttur hefur fallist á áfrýjun
Nú er tekin við ný sveitarstjórn undir forystu og hefur hún fallið frá áfrýjuninni með ákvörðun sinni í gær. Á fundinum í gær voru lögð fram gögn frá Birni Jóhannessyni lögmanni sveitarfélagsins er varðar beiðni um leyfi til áfrýjunar á dómi Héraðsdóms Vestfjarða í máli nr. E-136/2021 til Landsréttar. Fram kemur að Landsréttur hefur fallist á áfrýjunarbeiðnina þar sem úrslit málsins hefur verulegt almennt gildi auk þess að ekki er útilokað samkvæmt fyrirliggjandi gögnum að dómi héraðsdóms kunni að vera breytt sem einhverju nemi.
Í bókun T lista segir að framhjá því verður ekki litið að breytingar hafa orðið í sveitarstjórninni og telja verður það afar óeðlilegt að sveitarfélagið standi í kostnaðarsömum málaferlum við kjörna fulltrúa sína. Litlit fjárhagslegir hagsmunir séu undir í málinu en kostnaður sveitarfélagsins af frekari málaferlum geti orðið umtalsverður. Þá segir í bókun T istans.
„Með ákvörðun um að una niðurstöðu héraðsdóms í málinu og láta þar með staðar numið varðandi fyrrgreindan ágreining fyrrverandi sveitarstjóra og fráfarandi sveitarstjórnar er jafnframt horft til mikilvægis þess að ákvörðunin stuðli að sátt og einingu í sveitarfélaginu. Öllum má vera ljóst að mikilvægt er að eining og gott samstarf ríki við stjórn sveitarfélagsins og að horft verði til framtíðar í stað þess að dvelja við ágreining fortíðar.“
A-listinn óskar eftir að eftirfarandi bókun sé gerð: “Við teljum mjög mikilvægt fyrir báða aðila máls, sem Þorgeir Pálsson höfðaði gegn Strandabyggð, að fá endanlegan úrskurð á æðra dómstigi. Sá dómur kynni einnig að hafa fordæmisgildi til að skýra réttarstöðu stjórnenda sveitarfélaga gagnvart vinnuveitenda sínum. Við teljum að afstaða meirihlutans fari í bága við siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í Strandabyggð, þ.e. 2. og 5. grein, og við áskiljum okkur rétt til að leita álits nefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga samkvæmt 4. m.g.r 29. gr. sveitarstjórnarlaga 138/2011.”