Samþykkt hefur verið á Alþingi, í tengslum við afgreiðslu fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar fyrir 2022 að framlengja átakið ALLIR VINNA.
Efnt var til átaksins á fyrri hluta ársins 2020 sem hluta af aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við áhrifum COVID-19 á efnahagslífið. Átakinu átti að ljúka nú um áramótin en samkvæmt tillögu meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar við afgreiðslu bandormsins svokallaða, sem hefur að geyma ýmsar breytinga á lögum í tengslum við afgreiðslu fjárlaga, hefur verið samþykkt að framlengja átakið en þó í aðeins breyttri mynd.
Full endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu iðnaðar- og verkamanna sem unnin er á byggingarstað við nýbyggingu, viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis, er framlengd til og með 31. ágúst 2022 en eftir þann tíma frá og með 1. september 2022 skal endurgreiðslan miðast við 60%.
Jafnframt er 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts framlengd af vinnu iðnaðar- og verkamanna sem unnin er á byggingarstað við nýbyggingu, viðhald og endurbætur frístundahúsnæðis og húsnæði í eigu sveitarfélaga, sem og vinnu við hönnun og eftirlit með byggingum, endurbótum og viðhaldi frístundahúsnæðis, ásamt vinnu manna vegna heimilisaðstoðar og reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis. Gildistími þessara ívilnana er til og með 30. júní 2022 og falla þær því niður frá og með 1. júlí 2022.
Það var hins vega ekki samþykkt að framlengja ívilnanir vegna 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna við bílaviðgerðir, bílamálningu eða réttingar fólksbifreiða. Falla þær niður frá og með 1. janúar 2022.