Laugardagur 19. apríl 2025

Skurðpunktar

Auglýsing

Út er komin bókin Skurðpunktar – Heimsóknir til staða á Íslandi þar sem lengdar- og breiddarbaugar skerast eftir Emil H. Valgeirsson.

Um Ísland liggja ellefu lengdarbaugar og þrír breiddarbaugar sem skerast á 23 stöðum innan strandlengjunnar.

Í þessari bók heimsækir höfundur alla þessa skurðpunkta í máli og myndum, en umhverfi þeirra gefur vissan þverskurð af landinu og náttúrufari þess.

Staðirnir eru misaðgengilegir en kannski ekki allir tilkomumiklir út frá hefðbundnum skilgreiningum. Þeir fá þó sinn sess hér sem fulltrúar hinnar almennu náttúru sem ávallt er merkileg á sinn hátt.

Auglýsing

Nýtt á BB

Auglýsing
Auglýsing

Fleiri fréttir