Verkís hefur skilað til Ísafjarðarbæjar minnisblaði um úbætur á fráveitukerfi Ísafjarðarbæjar og er byggt á úttekt sem gerð var 2017. Þá voru skoðaðar voru allar útrásir í sveitarfélaginu og gert var straumfræðilíkan af Skutulsfirði til að ákvarða staðsetningu útrása m.t.t. strauma.
Útrásir frá hverjum byggðakjarna í sveitarfélaginu eru samvæmt meðfylgjandi töflu og er fyrst fjöldi þeirra í dag og svo fjöldinn eftir af framkvæmdum lýkur.
Á Ísafirði er gert ráð fyrir fjórum hreinsistöðvum. Þar er kostnaður áætlaður 500 milljónir króna. Á Þingeyri er kostnaður við nauðsynlegra framkvæmdir talinn vera 210 milljónir króna, 79 m.kr. á Suðureyri, 20 m.kr. á Flateyri og 10 m.kr. í Hnífsdal. Samtals er kostnaðaráætlunin upp á 817 m.kr.
Styrkupphæð frá ríkinu er að jafnaði 20% af heildarkostnaði fráveituframkvæmdar.
Í framkvæmdaáætlun Verkís er kostnaði dreift niður á ár og reynt að halda kostnaði á bilinu 40-60 millj. pr. ár en á einstaka árum fellur til meiri kostnaður. Framkvæmdatíminn er til 2036.