Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á fjölmennu aukakjördæmisþingi Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi sem haldið var í fjarfundi þann 20. apríl.
Fimm efstu sæti listans eru skipuð samkvæmt niðurstöðu prófkjörs sem fram fór í febrúar og mars.
1. Stefán Vagn Stefánsson, Sauðárkróki – Yfirlögregluþjónn og forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar
2. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Borgarbyggð – Háskólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknarmanna
3. Halla Signý Kristjánsdóttir, Önundarfirði – Alþingismaður
4. Friðrik Már Sigurðsson, Húnaþingi vestra – Bóndi og formaður byggðarráðs Húnaþings vestra
5. Iða Marsibil Jónsdóttir, Vesturbyggð – Skrifstofu- og mannauðsstjóri og forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar
6. Elsa Lára Arnardóttir, Akranesi – Aðstoðarskólastjóri, formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar og f.v. alþingismaður
7. Þorgils Magnússon, Blönduósi – Skipulags- og byggingarfulltrúi
8. Gunnar Ásgrímsson, Sauðárkróki – Háskólanemi
9. Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir, Stykkishólmi – Nemi
10. Jóhanna María Sigmundsdóttir, Búðardal – Verkefnastjóri og f.v alþingismaður
11. Ragnheiður Ingimundardóttir, Strandabyggð – Verslunarstjóri
12. Gauti Geirsson, Ísafirði – Nemi
13. Sæþór Már Hinriksson, Sauðárkróki – Tónlistarmaður
14. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Borgarbyggð – Lögreglumaður
15. Sigurdís Katla Jónsdóttir, Dalabyggð -Nemi
16. Sveinn Bernódusson, Bolungarvík – Járnsmíðameistari