Skrifað var undir samning í gær um endurbyggingu stálþils við Brjótinn í Bolungarvíkurhöfn.
Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar, og Stefán Guðjónsson, framkvæmdastjóri Ísar ehf., skrifuðu undir samninginn í Ráðhússsal Ráðhúss Bolungarvíkur.
Hafnarsjóður Bolungarvíkur óskaði eftir tilboðum í maí og voru fimm tilboð opnuð þann 12. júní 2019 og af þeim var tilboð Ísar ehf. lægst.
Verktakinn áætlar að hefja framkvæmdir strax í næstu viku með efnisflutningum og niðurrekstur stálþils mun hefjast í lok ágúst. Enginn starfsemi verður á fremsta hluta Brjótsins meðan á framkvæmdum stendur.
Verklok eru áætluð 1. nóvember 2019.
Helstu verkþættir eru:
- Prufurekstur, sprengd eða rippuð rás fyrir þil ef þörf reynist á.
- Rekstur 78 stálþilsplatna, steypa akkerisplötur, uppsetning staga og festinga og fylling innan við þil.
- Taka upp fríholt, brjóta og fjarlægja kant með pollum og festihringjum alls um 97 m.
- Brjóta og fjarlægja steypta þekju.
- Aftengja og taka upp raf-, og vatnslagnir.
- Leggja vatnslagnir í bryggjuna og ídráttarrör fyrir rafstrengi
- Steypa kantbita með pollum, uppsetningu á stigum og fríholtum.
- Fylla í skarð milli gamla stálþils og grjótgarðs norðaustan við stálþilið.
- Taka upp núverandi grjótvörn og endurraða grjótvörn utan á nýja fyllinguna.