Þegar er búið að selja fyrstu íbúðina í nýbyggingunni að Sindragötu 4a sem Ísafjarðarbær stendur fyrir. Í húsinu verða 13 íbúðir sem allar eru komnar á sölu. Íbúðin seldist fyrir 28,5 milljónir króna sem er það sem sett var á hana. Íbúðirnar eru seldar án gólfefna en tilbúnar að öðru leyti. Verðið er þá um 400 þúsund krónur á hvern fermetra. Guðmundur Óli Tryggvason sagði í samtali við Bæjarins besta að mikil eftirspurn væri og vel liti út með sölu.
Húsið er þriggja hæða lyftuhús auk kjallara. Íbúðirnar eru allt frá 52 og upp í 140 fermetrar að stærð að meðtöldum bílskúr.
Á fyrstu hæð eru fimm íbúðir, fimm á annarri hæð og þrjár á þeirri efstu. Vestfirskir verktakar ehf. annast byggingu hússins fyrir Ísafjarðarbæ.
Áætlað er að afhenda íbúðirnar í lok árs.