Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að samið verði við Geirnaglann ehf. um viðhaldsframkvæmdir við Grunnskólann á Ísafirði. Lagfæra þarf kennslustofur, glugga og þak vegna raka og mygluskemmda. Samningsverð er 72,3 milljónir króna.
Verkinu innandyra skal lokið 20. ágúst og að fullu lokið 30. september 2019.