Bygging nýs fjölbýlishúss við Sindragötu á Ísafirði er vel á veg komin, en í þessari viku er verið að steypa plötu yfir aðra hæð hússins. Íbúðirnar verða mjög fljótlega komnar í söluferli hjá Fasteignasölu Vestfjarða. Endanleg skilalýsing, þ.e.a.s. nákvæm útlistun á innréttingum, gólfefnum o.s.frv., mun liggja fyrir þegar íbúðirnar verða auglýstar til sölu.
Daníel Jakobsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, segir að upphaflega hafi hugmyndin verið að koma íbúðunum á leigumarkað, en síðar hafi verið ákveðið að bjóða þær til sölu. „Þetta verða glæsilegar íbúðir á frábærum stað sem gætu til að mynda hentað eldra fólki sem vill minnka við sig, en það hefur verið vöntun á fjölbýlishúsum með lyftu á Ísafirði. Íbúðirnar eru 13 talsins, allt frá 52 og upp í 140 fermetrar að stærð að meðtöldum bílskúr. Á fyrstu hæð eru fimm íbúðir, fimm á annarri hæð og þrjár á þeirri efstu“, segir Daníel.
Framkvæmdaaðili er Ísafjarðarbær, Vestfirskir verktakar ehf. annast byggingu hússins og verklok verða í október á þessu ári.